Nemendur í 10. bekk héldu í eftirminnilega útskriftarferð í lok skólaársins og gistu í tvær nætur í Básum í hjarta Þórsmerkur. Ferðin var bæði til að fagna lokum grunnskólagöngunnar og til að styrkja vináttu og samstöðu innan hópsins áður en hver fer sína leið. Veðrið lék við hópinn og stemningin var frábær frá upphafi til enda. Nemendur nutu sín í náttúruparadísinni, fóru í gönguferðir, spiluðu, grilluðu og tóku þátt í ýmsum leikjum og hópefli. Hápunktur ferðarinnar var án efa spennandi flúðasigling þar sem mikil gleði einkenndi hópinn á meðan bátarnir ruddust niður Hvítá. Nemendur og starfsfólk var ánægt með ferðina og komu þau heim með bros á vor og fullt af dýrmætum minningum í farteskinu. Deila Tísta