Nám og kennsla

Félagsmiðstöðin Vitinn

Í Vitanum er boðið upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8.–10. bekk en einnig er boðið upp á starf fyrir miðdeild. Þar fá ungmenni tækifæri til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.

Vitinn heldur úti fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við nemendafélagið sem tekur mið af áhugamálum hverju sinni. Starfið einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og unglingalýðræði. Upplýsingar um starfið má finna á Facebook og Instagram-síðum Vitans. 

Vitinn kemur að mörgum viðburðum sem snúa að félagslífi unglinganna. Grunnskólahátíð er sameiginlegt ball allra grunnskólanna í bænum og er hún samvinnuverkefni allra félagsmiðstöðvanna í bænum og er að jafnaði haldin um miðjan febrúar. Vitinn sér einnig um árshátíðina.

Vitinn leitast við að ná til ungmenna sem ekki stunda heilbrigt tómstundarstarf eða teljast til áhættuhóps. Í Vitanum er hverjum einstaklingi mætt á sínum forsendum og veitt tækifæri til að njóta sín í félagsstarfinu.

Vitinn er staðsettur í íþróttahúsi Lækjarskóla á annarri hæð.

Opnunartímar

Bekkur Opnunartímar
5. bekkur Mánudagar 17:00–18:45
6. bekkur Miðvikudagar 17:00–18:45
7. bekkur Föstudagur 17:00–18:45
8.–10. bekkur Mán/mið/fös 19:30–22:00

Vitinn á samfélagsmiðlum