Heilsubærinn Hafnarfjörður býður til ókeypis og upplýsandi fræðslustundar sem ekkert foreldri eða starfsfólk skóla ætti að láta framhjá sér fara. Áhrifaríkur fyrirlestur um áhrif skjátíma á þroska og líðan barna, frumsýning á myndbandi Foreldraráðs Hafnarfjarðar og fallegir boðberar kærleikans. Fræðslustundin verður í beinu streymi en öll áhugasöm eindregið hvött til að gefa sér tíma og mæta í Bæjarbíó, meðtaka, spyrja og fræðast. Fræðslustundin er upphaf vegferðar sem hefur þann tilgang að opna augun – augu allra 👥
—————————
Snjalltækjanotkun – áhrif, afleiðingar og úrræði 👀🌱
Unnur Arna Jónsdóttir er eigandi Hugarfrelsis. Unnur verður fyrirlesari fræðslustundarinnar og er markmiðið m.a. að veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna. Flest gerum við okkur grein fyrir því að skjátími hefur áhrif en fæst hversu skaðleg áhrifin geta verið á heilbrigði og líðan barna okkar.
—————————
Horfumst í augu 🫶
Foreldraráð Hafnarfjarðar mun frumsýna áhugavert myndband tengt skjátíma barna. Foreldraráðið er metnaðarfullt og með spennandi hugmyndir um alls konar tengt aukinni samveru, útiveru og upplifun.
—————————
Rödd kærleikans❤️
Kór Öldutúnsskóla, undir styrkri stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, mun flytja lagið Skínum skært og gerast þannig boðberar kærleikans í Hafnarfirði. Flutningurinn mun ekki láta neinn ósnortinn.
Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri forvarna og frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ, sér um stýringu fræðslustundar.
—————————
Saman erum við þorpið – vertu með! 👌
Haustið 2024 fór Hafnarfjarðarbær og heilsubærinn Hafnarfjörður af stað með fundaröðina: Við erum þorpið – um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi. Á árinu 2025 mun þessi fundarröð halda áfram og það undir heitinu: Við erum þorpið – horfumst í augu. Heitið er innihaldsríkt og tekur til samskipta, samveru, hugmynda, upplifunar og alls þess sem hægt er að gera án tækja og tóla. Árið 2025 verður ár enn meira samstarfs heimila, skóla og samfélags og þar spila foreldrafélög í hverjum skóla stórt hlutverk. En umfram allt eru það foreldrarnir sjálfir sem spila stærsta hlutverkið.
Fundaröðin er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.
Vertu með í vegferðinni! 👣 See less

Sýna minna