Árshátíð unglingastigs Lækjarskóla var haldin miðvikudaginn 18. mars og tókst með eindæmum vel.

Boðið var upp á góðan mat og nemendur í 10.bekk sýndu árlegt árshátíðarmyndband sem þótti með afar vel heppnað. Greinilegt að mikil vinna og undirbúningur lá að baki myndbandsins. Af því loknu hófst ball og tónlistin var allráðandi.

Við þökkum öllum, starfsfólki og nemendaráði, sem komu að skipulagningu og framkvæmd fyrir skemmtilega árshátíð.