Nemendur í 9. bekk unnu nýverið spennandi náttúrufræðiverkefni þar sem þeir rannsökuðu bakteríur úr eigin umhverfi. Verkefnið var hluti af náttúrugreinakennslu hjá Kristínu kennara og miðar að því að efla áhuga á vísindum og verklegu námi.

Nemendur tóku sýni af ýmsum flötum, til dæmis klósettsetu, og skoðuðu bakteríurnar með aðstoð tækninnar. Niðurstöðurnar komu mörgum á óvart og sýndu skýrt að bakteríur finnast víða, jafnvel þar sem nemendur eiga síst von á þeim. Verkefnið vakti bæði forvitni og aukinn skilning á mikilvægi hreinlætis í daglegu lífi.

Verkefnið þótti ekki aðeins lærdómsríkt heldur einnig afar skemmtilegt, en mikið var hlegið og gleði meðal nemenda.

Til gamans þá hafa rannsóknir sýnt að á einu lyklaborði geta verið þúsundir upp í milljón bakteríur, sem er jafnvel meira en á klósettsetu. Þar með verður ekki meira skrifað..