Ykkur til upplýsingar þá hafa orðið breytingar á stjórnendateymi skólans.

Arna Björný er skólastjóri þetta skólaárið þar sem Dögg skólastjóri er í námsleyfi og Hulda Sólveig Jóhannsdóttir er aðstoðarskólastjóri. Sigurveig  Margrét Önundardóttir er nýr deildarstjóri í 1.- 5. bekk, Þórarinn Böðvar Þórarinsson er deildarstjóri í 6-10. bekk, Margrét Ósk Gunnarsdóttir er deildarstjóri stoðþjónustu og sérdeildar, Bjarnveig Dagsdóttir deildarstjóri tómstundamiðstöðvar og Perla Steingrímsdóttir er skrifstofustjóri.