Erasmus-verkefni 10.bekkjar

Í vor tóku fjórtán nemendur úr Lækjarskóla þátt í spennandi Erasmus-verkefni sem snerist um að dýpka skilning á landafræði og menningu milli landa. Erasmus+ er samstarfsverkefni á vegum Evrópusambandsins sem miðar að því að efla menntun, þjálfun og ungmennaskipti innan Evrópu. Verkefnið opnar dyr að nýjum sjónarhornum, alþjóðlegri samvinnu og lífsreynslu sem fer langt út fyrir skólastofuna.

Nemendurnir ferðuðust til Írlands í mars þar sem þeir unnu með írskum jafnöldrum sínum að ýmsum verkefnum tengdum landafræði, náttúru og menningarlegum þáttum beggja landa. Í upphafi maí komu írskir nemendur í heimsókn til Íslands þar sem þau tóku þátt í sameiginlegri dagskrá og skoðunarferðum.

Á meðan á heimsókninni til Íslands stóð voru helstu ferðamannastaðir landsins skoðaðir. Gullfoss, Geysir, Þingvellir og tekin sundsprettur í Bláa lóninu – með það að markmiði að kynnast jarðfræði og landslagi landsins í víðu samhengi.

Aðalmarkmið verkefnisins var að efla skilning á landafræði með því að bera saman náttúru og samfélag tveggja ólíkra landa, auk þess sem nemendur styrktu tungumálakunnáttu sína og menningarlega hæfni í leiðinni.

Verkefnið var bæði fræðandi og skemmtilegt og gaf nemendum einstakt tækifæri til að kynnast nýjum vinum, menningu og náttúru – og jafnframt að vera glæsilegir fulltrúar Lækjarskóla á alþjóðavettvangi.