Við viljum sérstaklega bjóða þér á foreldrafræðsluna í Bæjarbíó þann 18. mars kl. 19:30.
Fyrirlesarinn, Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir, er menntatæknisérfræðingur og stofnandi fyrirtækisins HARTS. Hún hefur sérstaka sérþekkingu á tæknilausnum sem geta stutt nemendur með námserfiðleika. Hún er sjálf með ADHD, er einhverf og alvarlega lesblind og nýtir sjálf margar tæknilausnir til að ganga vel í háskólanámi í Bandaríkjunum.
Fyrirlesturinn hefur vakið mikla athygli og foreldrar heyra þar sögur barna sem hafa fundið trú á sjálfum sér og opnast fyrir möguleikum sem þau töldu sig ekki geta nýtt sér eftir að hafa setið fyrirlesturinn.
Þetta kvöld er sérstaklega gagnlegt fyrir foreldra sem eru með börn sem eiga við námserfiðleika eða gætu nýtt sér tæknilausnir til að stuðla að velgengni í námi.