Tveir nemendur úr Lækjarskóla, Arna Hlín Ýmisdóttir og Áróra Lea Goðadóttir, tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni í Hafnarfirði sem haldin var í 30. sinn síðastliðinn þriðjudag. Keppnin er rótgróin hefð sem miðar að því að efla lestur, framsögn og sjálfstraust nemenda. Þær Arna og Áróra stóðu sig með miklum sóma og sýndu vandaðan og lifandi upplestur. Það er ánægjulegt að segja frá því að Arna Hlín hafnaði í 2. sæti. Til hamingju, Arna! Við erum afar stolt af okkar nemendum og óskum þeim og öllum þátttakendum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu. Hér má lesa nánar um keppnina á heimasíðu Hafnarfjarðar: Stóra upplestrarkeppnin í 30 ár Deila Tísta