Nú eru margir sem koma á hjóli í skólann. Þá er þörf á að rifja upp reglur um notkun slíks búnaðar. Mikilvægt er að foreldrar tali við börn sín um að allir láti hjól annarra í friði. Hér að neðan má finna hjólareglur. Reglur sem gilda fyrir reiðhjól, rafmagnshjól og rafmagnshlaupahjól Nemendur mega koma á hjóli í skólann frá og með vori í 2. bekk. Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Allir nemendur sem koma á hjóli í skólann eiga að vera með hjálm. 79. grein umferðarlaga: „Barn yngra en 16 ára skal nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar“. Nemendur mega ekki vera á hjóli á skólalóðinni (í frímínútum eða í Frístund). Nemendur eiga ekki að vera að leik á hjólum/vespum á skólalóðinni. Þegar hjólað er af skólalóð þarf að fara mjög varlega, velja stystu leið og fara beint af skólalóðinni. Á skólatíma eiga hjól að vera læst í eða við hjólagrindur. Skólinn ber ekki ábyrgð og hjólum. Foreldrar/forráðamenn geta kært þjófnað og/eða skemmdarverk til lögreglu. Deila Tísta