Moritz Wilke Kjartansson í 10. bekk hlaut 2. sæti í smásagnasamkeppni grunnskóla Hafnarfjarðar fyrir söguna Hugarvinur. Smásagnasamkeppnin er haldin árlega og gefur nemendum tækifæri til að njóta sín í skapandi skrifum, rækta ímyndunaraflið og miðla eigin hugmyndum í gegnum frásögn. Við óskum Moritz innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. Lækjarskóli er afar stoltur af sínum nemanda. Deila Tísta