Á morgun, miðvikudaginn 25. mars, hefjast þemadagar í skólanum og standa þeir út föstudaginn. Á þemadögum eru skertir skóladagar og lýkur skóla fyrr en venjulega: Nemendur í 1.–4. bekk ljúka skóladegi kl. 11:30, nema þeir sem eru skráðir í Lækjarsel. Nemendur í 5.–10. bekk ljúka skóladegi kl. 12:00. Nemendur fá hádegismat áður en þeir fara heim. Páskafrí hefst mánudaginn 30. mars og skóli hefst að nýju þriðjudaginn 7. apríl. Deila Tísta