Kæru nemendur og foreldrar,

Við viljum minna á að skólaslit fyrir skólaárið 2024-2025 hjá 1. – 9. bekkjum í Lækjarskóla verða haldin föstudaginn 6. júní kl. 9:00. Nemendur mæta í heimastofur kl. 8:50. Skólaslitin fara fram úti á skólalóðinni og vonumst við til að veðrið verði okkur hliðhollt.

Að athöfn lokinni afhenda umsjónarkennarar einkunnarspjöld inni í stofum og kveðja nemendur. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að vera með okkur á þessum tímamótum.

Lækjarsel verður opið en skráning er nauðsynleg.

Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og vonum að þið eigið gott sumarfrí!