Góð mæting í skóla er mikilvægur þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Miklar fjarvistir úr skóla geta verið kvíðavaldandi fyrir börn og unglinga og geta valdið skólaforðun og versnandi námsárangri. Í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar eru samræmdar reglur varðandi ástundun. Fylgt er ákveðnu vinnuferli varðandi slaka ástundun sem skiptist í: forstig viðbragðsstig hættustig barnaverndarstig Tilgangurinn með ferlinu er að samhæfa viðbrögð við skólasókn svo sama ferli mæti nemendum með svipaða skólasókn óháð einstaka grunnskólum. Skólasóknareinkunn Skólasóknareinkunn er gefin sem lokaeinkunn í lok skólaárs fyrir allt skólaárið út frá fjarvistum, seinkomum og brottrekstrum. Einkunn er gefin á kvarðanum A, B+, B, C+, C og D. Hún hefst með einkunnina A og lækkar síðan allan veturinn eftir því sem fjarvistir aukast. Hægt er að hækka skólasóknareinkunn upp um fjögur fjarvistarstig á viku með óaðfinnanlegri skólasókn í heila viku. Ekki er hægt að hækka hærra en í B yfir skólaárið og hækkun hefst ekki fyrr en nemandi er kominn í C+ í einkunn eða lægra. Raunmætingareinkunn Raunmætingareinkunn í prósentum er gefin í lok skólaárs fyrir allt skólaárið. Nemandi byrjar með 100% skólasókn í upphafi skólaárs og lækkar hún eftir því sem fjarvistir, seinkomur, brottrekstrar, leyfi og veikindi koma til. Undanþágur hafa ekki áhrif á raunmætingu, til dæmis undanþága frá sundtímum vegna íþróttaþjálfunar hjá íþróttafélagi. Það sama gildir ef nemandi hefur formlega „skerta stundatöflu“. Aðeins skólastjóri veitir undanþágur til einstakra nemenda. Fjarvist, seint og brottrekstur Ef nemandi kemur í tíma eftir að kennsla hefst telst það vera seint og er 1 fjarvistarstig. Ef nemandi mætir ekki í tíma eða eftir að 20 mínútur eru liðnar telst það vera fjarvist og er 2 fjarvistarstig. Ef nemanda er vikið úr tíma er honum vísað til skólastjórnanda og er 3 fjarvistarstig. Ef skólastjórnandi vísar nemanda heim út skóladaginn eftir brottrekstur úr tíma fær nemandi 2 fjarvistarstig til viðbótar (en ekki fyrir aðra tíma sem hann missir af). Fjarvistir, seinkomur og brottvísanir úr tíma teljast til skólasóknareinkunnar. Leyfi og veikindi Stök leyfi og veikindi sem eru samtals 6 kennslustundir telst vera einn fjarvistardagur (12 fjarvistarstig). Leyfi og veikindi teljast ekki til skólasóknareinkunnar en teljast sem hluti af raunmætingu. Leyfi í 2 daga eða minna er hægt að tilkynna í Mentor, með tölvupósti eða hringja í skólann. Tilkynna þarf leyfi í 3 daga eða lengur gegnum form á vefsíðu skólans. Skólinn gefur ekki út sérstakt heimanám eða sérverkefni til nemenda í leyfum né gerir tilfærslur á námi. Allt nám er á ábyrgð forsjáraðila meðan á leyfi stendur. Ef eðlileg skýring er til staðar sem kennari hefur upplýsingar um frá forsjáraðilum, til dæmis vegna dvalar á spítala, fer ferli ekki í gang. Reglur um ástundun