Félag Einstakra barna hvetur öll til að sýna stuðning og samstöðu við þau sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni með því að GLITRA með sér þennan dag. Allt sem er litríkt og glitrar er skemmtilegt og minnir okkur á að við erum allskonar.

Með þáttöku flestra í þessari vitundavakningu vekjum við athygli á því að meira en 800 börn og ungmenni glíma við erfiðar og fátíðar greiningar sem afar fáir þekkja eða skilja.