Það verður foreldrafræðsla í Bæjarbíó kl 19:30 þann 18. mars um tæknilausnir fyrir nútíma nám í boði Hafnarfjarðarbæ. Fyrirlesarinn er Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sem er menntatæknisérfræðingur og stofnandi fyrirtækisins HARTS. Hún hefur fundað með kennurum og nemendum grunnskóla Hafnarfjarðar síðustu vikurnar á vegum verkefnisins Skóli fyrir öll. Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs, stýrir fundinum og segir fyrirlestra Jóhönnu Birnu hafa vakið mikla athygli. Hún hvetur foreldra til að mæta í Bæjarbíó og sjá allt sem er í boði. „Ég er ótrúlega stolt af því að hafa fengið Jóhönnu með okkur í lið og það er dásamlegt að heyra sögur barna sem hafa setið fyrirlesturinn þar sem þau tala um að hafa öðlast trú á sjálfum sér og von um framhaldsnám sem þau töldu sig ekki geta farið í.“ Skoða viðburðinn: https://www.facebook.com/events/1625032455361451?notif_id=1773229655947673¬if_t=plan_admin_added&ref=notif