Fræðsla með Önnu Laufeyju – Stafræn velferð og Gunnar Helgason mætir og heldur stutta tölu.
Fyrir alla í Hafnarfirði – foreldra, ungmenni og alla sem láta sig málið varða.
Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 18:30 í Víðistaðaskóla, á vegum Foreldraráðs Hafnarfjarðar.
Við förum yfir áhrif skjánotkunar á börn og unglinga og ræðum hvað foreldrar og ungmenni geta gert til að stuðla að heilbrigðu jafnvægi í skjánotkun – fyrir börnin, okkur sjálf og fjölskylduna í heild.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Happdrætti og allir fá heimilissáttmála til að taka með sér heim.