Innra mat Í Lækjarskóla á sér stað stöðugt innra mat. Stærsta formlega könnunin sem unnin er í innra mati í skólanum er Skólapúlsinn og einnig er lögð fyrir Olweusarkönnun. Innra mat Í Lækjarskóla á sér stað stöðugt innra mat. Stærsta formlega könnunin sem unnin er í innra mati í skólanum er Skólapúlsinn og einnig er lögð fyrir Olweusarkönnun. Áherslur skólans Að fá mat á gæði náms og námsmats. Að fá mat á gæðum kennslu og áætlanagerð. Að fá mat á lestrarnámi og lestrarkennslu. Að fá mat á líðan og heilsu nemenda. Að fá mat á ánægju og líðan starfsmanna og endurgjöf stjórnenda. Að fá mat á viðhorfi foreldra á nám, velferð og þjónustu. Skólapúlsinn Skólapúlsinn er kerfi sem allir grunnskólar í Hafnarfirði styðjast við. Á hverju ári eru rafrænar kannanir lagðar fyrir alla nemendur, foreldra og starfsfólk. Niðurstöður eru kynntar í lok hvers skólaárs og skólinn vinnur í kjölfarið að umbótaverkefnum. Foreldrakönnun 2023 Ytra mat Í Hafnarfirði sinnir sveitarfélagið sínum þætti í ytra mati með því að fylgja eftir að grunnskólar sinni sínum þætti í innra mati, leggur til matstækið Skólapúlsinn og vinnur sérstaklega úr þeim upplýsingum með skýrslugjöf eins og við á á hverjum tíma (Skólavogin). Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar fylgir eftir að skólarnir sinni áætlanagerð og umbótaverkefnum. Menntamálastofnun hefur umsjón með ytra mati á grunnskólum fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis. Á hverju ári fara 10 grunnskólar á landinu í ytra mat. Þá er starfsemi skólanna metin með hliðsjón af gildandi viðmiðum samkvæmt lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Matið byggir á fyrirliggjandi gögnum um starfsemi skólans, vettvangsheimsóknum matsaðila og viðtölum við nemendur, starfsfólk skóla og foreldra. Lækjarskóli fór í ytra mat á vorönn 2014. Teknir voru fyrir 4 matsþættir, þar af voru 3 fyrirfram ákveðnir en fjórði matsþátturinn var ákveðinn af sveitarfélagi og skóla. Þættirnir sem lagt var mat á voru stjórnun, nám og kennsla, innra mat og að ósk skóla og sveitarfélags var fjórði þátturinn nám nemenda með sérþarfir. Skýrsla um ytra mat Lækjarskóla Umbótaáætlun