Næstkomandi þriðjudagskvöld 29.september ætlum við í Lækjarskóla að boða foreldra og aðstandendur úr 7.-10.bekk til fundar í fyrirlestrarsal skólans. Umræðuefnið er áhættuhegðun unglinga í Hafnarfirði.

Samskiptamiðlar, orðræða, vímuefni, líkamsvirðing, rauð flögg í samskiptum eru meðal umræðuefna kvöldsins.

Á fundum koma þau Jóna Rán Pétursdóttir forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar, Kristín Blöndal Ragnarsdóttir kennari í unglingadeild Lækjarskóla og kennslufulltrúi mannréttinda hjá Hafnarfjarðarbæ og Jón Leví Steinsson verkefnistjóri í Vitanum og umsjónarmaður Götuvitans í Hafnarfirði með stutt erindi um stöðuna hjá unglingum í dag.

Fundurinn er klukkan 19:30 og verður til 20:45.
Vonumst eftir að sjá ykkur öll.