Nemendur í 10. bekk taka þessa dagana þátt í útigæslu í frímínútum hjá yngri nemendum skólans. Þar aðstoða þeir við að fylgjast með nemendum, eru til taks ef eitthvað kemur upp og bregða gjarnan á leik með þeim yngri.

Þessi góða hefð hefur verið við lýði í Lækjarskóla í nokkur ár og hefur gefist afar vel. Yngri nemendur njóta þess að hafa eldri nemendur með sér úti og um leið fá 10. bekkingar tækifæri til að axla ábyrgð og vera góðar fyrirmyndir.

Útigæslan er jafnframt hluti af fjáröflun 10. bekkinga fyrir útskriftarferð þeirra í vor.

Það er sérstaklega notalegt að sinna gæslunni þegar sólin skín og veðrið leikur við nemendur. Veðrið er þó ekki alltaf jafn samvinnuþýtt og þá þurfa 10. bekkingarnir að standa vaktina þótt rigning og rok láti á sér kræla.