Í náttúrufræði hafa nemendur í 6. bekk verið að læra um myglusveppi og gerðu í tengslum við námið skemmtilega tilraun með þrjár brauðsneiðar. Nemendur snertu eina brauðsneið með óþvegnum höndum, aðra eftir handþvott og þá þriðju eftir að hafa notað handspritt.

Síðan fylgdust nemendur spenntir með brauðsneiðunum og biðu eftir því að sjá hvar myglan myndi birtast fyrst. Það sem kom þeim mest á óvart var að brauðsneiðin sem var snert eftir handþvott myglaði fyrst og mest!

Í kjölfarið ræddu nemendur hvað gæti skýrt þessa niðurstöðu. Meðal þess sem kom til umræðu var að raki frá blautum eða rökum höndum geti skapað góð skilyrði fyrir myglusveppi til að vaxa og dreifa sér.

Tilraunin vakti mikla forvitni og skapaði skemmtilegar og fróðlegar umræður meðal nemenda.