Nemendur í 9. og 10. bekk Lækjarskóla tóku í vikunni þátt í íþróttadegi grunnskóla Hafnarfjarðar þar sem árgangarnir etja kappi í fjölbreyttum íþróttagreinum.

Nemendur okkar stóðu sig afar vel og voru Lækjarskóla til mikils sóma. Þar ber hæst að 10. bekkur hlaut flest stig samanlagt og stóð því uppi sem sigurvegari á íþróttamóti 10. bekkinga í Hafnarfirði.

Við óskum 10. bekkingum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum öllum nemendum í 9. og 10. bekk fyrir góða keppni.