Í dag var í fyrsta sinn haldið opið hús í Lækjarskóla þar sem foreldrum, forráðamönnum og öðrum gestum var boðið að koma í heimsókn og kynnast skólastarfinu.

Góð mæting var á opna húsið og fjölmargir gestir lögðu leið sína í skólann. Þeir fengu tækifæri til að ganga um skólahúsnæðið, skoða hvern krók og kima og sjá nemendur í leik og starfi.

Hver árgangur var með dagskrá þar sem gestir gátu tekið þátt í eða fylgst með verkefnum nemenda. Meðal þess sem boðið var upp á voru ratleikir um skólann, spurningakeppnir, ýmsar þrautir og fleiri verkefni.

Nemendur í 10. bekk voru með veitingasölu og í matsal skólans var sýnt myndband frá foreldraráði á stórum skjá.

Það var gaman að sjá hversu margir nýttu tækifærið til að heimsækja skólann og kynnast skólastarfinu með þessum hætti.

Takk fyrir komuna.