Nemendur í 10. bekk hafa undanfarið verið að læra um lögmál Newtons um krafta, frjálst fall, einfaldar vélar og fleira í eðlisfræði. Í tengslum við námið fengu nemendur skemmtilegt verklegt verkefni þar sem þeir þurftu, með takmörkuðu efni, að hanna og smíða búnað sem gat skotið kúlu ákveðna vegalengd. Nemendur þurftu að prófa sig áfram, fylgjast með niðurstöðunum og bæta hönnun sína eftir þörfum til að ná sem bestum árangri. Verkefnið reyndi þannig bæði á skilning á eðlisfræðinni, hugvit, lausnaleit og samvinnu. Deila Tísta