Þann 10. september höldum við upp á Gulan dag – dag gleði, jákvæðni og samstöðu.

Gulur september minnir okkur á mikilvægi þess að huga að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum og sýna hvert öðru kærleika, aðgát og umhyggju.

Við hvetjum því öll til að mæta í einhverju gulu þennan dag – hvort sem það er gul treyja, sokkar, skór eða eitthvað annað gult.

Gulur dagur er góð áminning um að litlu hlutirnir geta skipt miklu máli. Bros, hlý orð, góðvild og stuðningur við aðra geta haft meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir.