Foreldrar og forráðamenn geta samstillt einstaka viðburði við eigið dagatalsforrit, svo sem Outlook eða Google Calendar. Með því birtast viðburðirnir sjálfkrafa í dagatalinu ykkar og áminningar berast þegar nær dregur. Til að bæta við viðburði: Farið á viðburðadagatal á heimasíðu Lækjarskóla. Viðburðadagatalið er staðsett neðarlega á forsíðunni, fyrir neðan fréttasafnið. Opnið þann viðburð sem þið viljið bæta við í dagatalið ykkar. Veljið Outlook eða Google Calendar til að bæta viðburðinum við. Staðfestið innlesturinn ef dagatalsforritið biður um það. Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að nýta sér þessa einföldu og þægilegu leið til að fylgjast með því sem fram undan er í skólastarfinu. Deila Tísta