Í síðustu viku, fimmtudaginn 5. febrúar, var mikil gleði í 1. bekk þegar nemendur fögnuðu því að hafa verið 100 daga í grunnskóla.
Af gefnu tilefni var haldin skemmtileg og fjölbreytt hátíð þar sem forráðamönnum var boðið að í heimsókn og þeim boðið að taka þátt í skólahaldi með nemendum. Saman unnu foreldrar og börn skemmtileg verkefni tengt tölunni 100.
Það var dýrmæt samvera þar sem börnin gátu sýnt hvað þau hafa lært og upplifað á fyrstu 100 dögunum sínum í grunnskóla.
Hátíðin var vel heppnuð og einkenndist af gleði og góðri samveru. Í lok hátíðar sungu nemendur, foreldrar og starfsfólk Lækjarskólalagið saman.
Við þökkum Hildi og Svölu, umsjónarkennurum 1.bekkjar, fyrir skemmtilegt boð og góða samveru.