Á mánudag er samtalsdagur í Lækjarskóla. Á samtalsdegi fellur hefðbundið skólahald og kennsla niður en þess í stað mæta nemendur ásamt foreldrum eða forráðamönnum í skipulögð samtöl hjá umsjónarkennurum.

Markmið samtalanna er að fara yfir líðan og námsframvindu nemenda og ræða væntingar og markmið fyrir skólaárið.