Félagslíf unglinga í Lækjarskóla blómstrar og nú þegar hafa verið haldin tvö böll.
Félagsmiðstöð Lækjarskóla, Vitinn, í samstarfi við Setrið í Setbergsskóla og Ölduna í Öldutúnsskóla hófu skólaárið með „Back to school“ balli í september. Ballið gekk mjög vel og frábær mæting.
Unglingarnir í Lækjarskóla töluðu um að ballið hafi verið mjög skemmtilegt þar sem gleði og vinátta var ríkjandi.
Þá var hið árlega 220 ball haldið 5. nóvember síðastliðinn þar sem skólar í póstnúmerinu 220 koma saman og skemmta sér. Herra hnetusmjör og Daniil skemmtu nemendum og allir í skýjunum yfir vel heppnuðu balli.
Nemendur úr Lækjarskóla voru að sjálfsögðu sér sjálfum og Lækjarskóla til sóma og skemmtu sér konunglega.