Í gær fengu þessir frábæru starfsmenn Lækjarskóla, Björg, Hildur, Katrín, Kristín og Þórey viðurkenningu frá Hafnarfjarðarbæ fyrir 25 ára samfelldan starfsaldurs hjá sveitarfélaginu.

Þetta er einstakur áfangi og viðurkenning fyrir tryggð, fagmennsku og ómetanlegt framlag, sem við í Lækjarskóla höfum fengið að njóta svo vel.

Lækjarskóli óskar þessum starfsmönnum innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga.

Mynd frá vinstri: Hildur Kristjánsdóttir, Björg Hjörleifsdóttir, Þórey Sæmundsdóttir og Katrín Danivalsdóttir. Því miður vantar Kristínu Jónsdóttur á myndina.