Nemendur í 6. bekk settu upp árlegan helgileik Lækjarskóla þann 17. desember, sem sýndur var í íþróttahúsi skólans fyrir framan fjölskyldumeðlimi, starfsfólk skólans og yngri nemendur. Nemendur fluttu helgileikinn af miklum myndarskap, léku á hljóðfæri og sungu og sköpuðu í senn skemmtilega og hlýja stemningu. Helgileikurinn var vel heppnaður og vakti ánægju hjá áhorfendum. Við þökkum umsjónarkennurum, Elínu og Magneu, og tónmenntakennara Lækjarskóla, Gunnari, kærlega fyrir sitt framlag. Deila Tísta