Nemendur í 6. bekk hafa undanfarið verið á spennandi ferðalagi um sólkerfið okkar í náttúrufræði. Þau hafa fræðst um sólina, reikistjörnurnar og ýmis áhugaverð fyrirbæri í geimnum. Sem hluta af verkefninu unnu nemendur hópverkefni þar sem hver hópur fékk eina plánetu til að rannsaka nánar. Þau söfnuðu saman fróðleik, fundu áhugaverðar staðreyndir og settu upplýsingarnar fram á skapandi og litríkan hátt á plakkötum. Nú eru nemendur að vinna að kynningarverkefni þar sem þau munu kynna sína plánetu fyrir bekkjarfélögum sínum. Þar fá þau tækifæri til að æfa sig í að miðla þekkingu, tala fyrir framan hóp og deila því sem þau hafa lært. Deila Tísta