Nemendur í 6. bekk hafa verið að vinna hópverkefni í náttúrufræði um meltingarfærin og hlutverk þeirra. Í verkefninu kynna nemendur sér leið fæðunnar um líkamann og hvernig ólík líffæri vinna saman að því að brjóta niður fæðuna og nýta næringarefnin úr henni. Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að dýpka þekkingu sína á mannslíkamanum og þjálfa um leið samvinnu og verkefnavinnu. María og Rósa, umsjónarkennarar árgangsins, eru alltaf með þetta. Deila Tísta