Nemendur komu með þá hugmynd að fara í nerfleik í myrkri á vegum félagsmiðstöðvarinnar Vitans. Þeir fengu íþróttasalinn að láni og hugmyndin varð að veruleika. Mikið stuð var í salnum og góð stemning meðal nemenda. Gaman er að sjá nemendur taka þátt í að móta starfið í Vitanum. Deila Tísta