Miðvikudaginn 21. október höldum við upp á Bleika daginn í Lækjarskóla og sýnum konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.

Þau sem vilja eru hvött til að klæðast einhverju bleiku – hvort sem það er peysa, sokkar, slaufa eða annar fylgihlutur. Að sjálfsögðu er þátttaka valfrjáls – það er hugsunin sem gildir mestu.

Tóti deildarstjóri fer þó að venju alla leið og lætur bleika litinn ráða för, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Skólinn sjálfur hefur meira að segja fengið bleikan búning með smá aðstoð tækninnar.

Sjá upplýsingar um bleika daginn https://www.krabb.is/bleika-slaufan/bleiki-dagurinn