Lækjarskóli opnar 7:45 fyrir nemendur til að mæta þeim forráðamönnum sem þurfa að vera mætt snemma til vinnu. Frá 07:45 – 8:10 sinna þrír starfsmenn skólans eftirliti með nemendum í skólanum. Hins vegar skal hafa í huga að starfsmenn ná ekki að vera sýnilegir á öllum stöðum hverju sinni þar til skóli hefst 8:10. Við biðjum forráðamenn sem koma með börn sín áður en skólahald hefst að ræða við börn sín um mikilvægi þess að sýna góða hegðun og fara eftir fyrirmælum starfsmanna. Sérstaklega viljum við minna á að hlaup og klifur á svalahandriðum innandyra er ekki leyfilegt, enda viljum við tryggja öryggi allra barna. Ef upp koma aðstæður þar sem börn eiga erfitt með að fylgja fyrirmælum munum við hafa samband og ræða málin í góðu samstarfi við ykkur. Deila Tísta