Á miðvikudag og fimmtudag fara fram árlegir fjölgreindaleikar Lækjarskóla og taka allir nemendur skólans þátt. Nemendum er skipt í hópa sem fara á milli stöðva og leysa fjölbreyttar þrautir í anda fjölgreindakenningar Howards Gardners. Þar fá nemendur tækifæri til að nýta ólíka styrkleika sína, prófa ný verkefni og vinna saman að lausnum. Nemendur í 10. bekk leiða hópana sem liðstjórar og gæta að yngri nemendum. Það er jafnan mikil stemning og gleði í skólanum þessa daga. Deila Tísta