Fjölgreindaleikar Lækjarskóla fóru fram í síðustu viku og gengu mjög vel. Góð stemning ríkti í húsinu þegar nemendur spreyttu sig á fjölbreyttum og stundum krefjandi verkefnum. Þar reyndi á ólíka styrkleika, hugmyndaflug og samvinnu.

Elstu nemendur skólans voru að venju hópstjórar og stóðu sig  vel í því hlutverki. Við þökkum þeim sérstaklega fyrir sitt framlag.

Sjá myndir frá leikunum hér að neðan.