Nemendur í 7. bekk luku nýverið verkefni þar sem þau völdu sér atburð eða ár á tímabilinu 1968–2000. Nemendur unnu plakat og fluttu munnlega kynningu þar sem þau útskýrðu hvað gerðist, hvers vegna og hvaða áhrif atburðuinn hafði.
Viðfangsefnin voru afar fjölbreytt – allt frá stríðsátökum í Tjetsjenía til tæknibreytinga á borð við tónlistarforritið Napster.  Afraksturinn prýðir nú veggi skólans.
Verkefnið heppnaðist mjög vel og sýndi að sagan getur verið bæði lifandi og lærdómsrík.
Á meðfylgjandi myndum má sjá hluta af frábærum verkefnum nemenda.