9.bekkur Lækjarskóla er þessa viku í nemendaferð í Vindáshlíð. Þessi hefð að senda 9.bekk í Vindáshlíð hefur verið við lýði síðustu ár, frá því að ferðir nemenda í Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatn lögðust af. Mikil ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag. Umsjónarkennarar fara að jafnaði með í ferðina og við fengum eftirfarandi skilaboð frá Alfreð og Sjöfn í dag: „Af okkur er allt gott að frétta og fyrstu dagarnir í Vindáshlíð hafa gengið ljómandi vel. Til að byrja með voru allir að koma sér fyrir, læra á reglurnar og kynnast staðnum. Fyrsta kvöldið var lasagne í matinn og flestir ánægðir með það. Í gær frestuðum við því að horfa á handboltaleikinn og tókum hann eftir kvöldmatinn. Það var fiskur í raspi í matinn og aftur flestir nokkuð sáttir. Við erum búin að vera helling úti og nemendur hafa líka fengið góðan frítíma en núna er þétt dagskrá framundan og samkvæmt Jörgen, sem sér um dagskrá skólabúðanna, er skemmtilegasti hlutinn eftir! Í dag ætlum við aftur að fresta handboltaleiknum, tökum hann í tveimur hollum, fyrir og eftir kvöldmat. Þetta verður svakaleg stemning og það eru kjúklingaborgarar í matinn í kvöld. Það er alltaf nónhressing og kvöldkaffi svo við erum sannarlega í sveitafíling.“ Greinilega mikil stemning í hópnum og allt gengið vel. Deila Tísta