Ævar vísindamaður kom í heimsókn 12. nóvember og las fyrir nemendur í 4. – 6.bekk á bókasafni skólans. Mikil gleði var með heimsóknina enda ávallt gaman að brjóta upp hefðbundið skólastarf, eitthvað sem við í Lækjarskóla gerum reglulega. Ævar las upp úr nýjustu bók sinni og gaf sér auk þess góðan tíma til að spjalla við nemendur. Þökkum Þóri á bókasafninu í Lækjarskóla kærlega fyrir gott boð. Deila Tísta