Húrra! Alexandra Tinna Nilsen Ómarsdóttir í 8.bekk varð í 3.sæti í Fernuflugi MS 2025 og hlaut í verðlaun 100.000 krónur.

Við óskum henni innilega til hamingju með sinn árangur.

Hér fyrir neðan er textinn sem Alexandra sendi inn.

Hvað er að vera ég?

Höfundur: Alexandra Tinna Nilsen Ómarsdóttir 13 ára

Að vera ég er eins og að ganga á milli skugga og ljóss.

Í hjarta mínu dansa spurningar sem fá engin svör,

en í augunum glóa vonir sem neita að slokkna.

Ég finn fyrir styrk í smáum sigri,

brosi sem hitar, orði sem gefur vængi.

Samt er alltaf blær af óvissu,

eins og vindur sem hvíslar að mér um leiðir fram undan.

Að vera ég er að vera á ferð –

ekki alveg komin, en heldur aldrei föst,

bara eilíflega á leiðinni heim til sjálfrar mín.