Bjarni Fritzson kom í heimsókn og las upp úr nýju Orra óstöðvandi bókinni sinni sem er sú áttunda í röðinni, en gerist þó fyrst af þeim öllum.
Á eftir var spurningakeppni þar sem spurt var úr bókunum og lofaði Bjarni pítsaveislu fyrir þann skóla sem svaraði flestum spurningum rétt. Að lokinni keppni kom í ljós að Lækjarskóli deildi efsta sætinu með öðrum ónefndum grunnskóla.
Nýja Orri óstöðvandi bókin kom út laugardaginn 22. nóvember og var fylgt úr hlaði með útgáfuteiti og pítsaveislu.
Við þökkum Bjarna fyrir fjöruga heimsókn og bókasafni Lækjarskóla fyrir skemmtilegan viðburð.