Þann 16. september var Dagur íslenskrar náttúru haldinn hátíðlegur víðsvegar um landið. Lækjarskóli tók þátt í deginum á fjölbreyttan hátt. Sumir bekkir fóru út og skoðuðu nærumhverfið og aðrir unnu verkefni innandyra. Til dæmis spiluðu nemendur í 5.bekk náttúrubingó með umsjónarkennurum sínum, Rósu og Maríu og nemendur í 2.bekk fóru út og söfnuðu saman fallegum laufblöðum. Afar skemmtileg og lærdómsrík verkefni. Við hvetjum öll til þess að hugsa vel um umhverfið okkar. Deila Tísta