Fjórtán nemendur og fjórir kennarar fóru nýverið í ferð til Ballincollig, sem er lítill bær í Cork á Írlandi. Þar tóku þau þátt í fjölbreyttri dagskrá, heimsóttu skóla og kynntust írskri menningu og daglegu lífi. Í ferðinni var meðal annars farið að Blarney Castle og fleiri skemmtilega staði í kringum Cork. Ferðin gekk mjög vel og nemendur komu heim með dýrmæta reynslu og ný tengsl til framtíðar. Ferðin er hluti af Erasmus verkefni sem Lækjarskóli hefur tekið þátt í undanfarin þrjú ár og sannarlega víkkað sjóndeildarhring kennara og nemenda. Deila Tísta