Í tilefni af evrópsku geðheilbrigðisvikunni sem haldin er 4.–8. maí 2026 hefur aðalstjórn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir heilbrigði og matvælaöryggi vakið athygli á þörf fyrir samstilltar aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum of mikillar og óvirkrar skjánotkunar.

Óvirk skjánotkun er skilgreind þannig að notendur eru eingöngu í viðtakendahlutverki og vanvirkir við skjáinn, svo sem við að „skruna“ (e. scrolling) og skoða myndefni, innlegg og skilaboð frá öðrum.

Rannsóknir sýna að óhófleg og vanvirk skjánotkun tengist verri andlegri heilsu, verri heilsuhegðun, styttri svefni, minni námsárangri og verri tengslum við skóla. Í evrópsku geðheilbrigðisvikunni eru foreldrar, umönnunaraðila og skólafólk hvatt til að eiga opnar umræður við börn og ungmenni um málefni eins og:

  • Að vera meðvituð á netinu.
  • Eiginleika algóryþmans við að stýra innihaldi á samfélagsmiðlum.
  • Skilaboð og myndefni sem getur haft neikvæð áhrif á líðan og hegðun.
  • Óheilbrigð samskipti á netinu.
  • Skaðleg áhrif kyrrsetu sem getur fylgt óhóflegri skjánotkun.
  • Hættur sem eru til staðar á netinu, s.s. skaðleg skilaboð um líkamsmynd, hreyfingu, matarvenjur og fæðubótarefni, veðmál og fjárhættuspil, innræting hatursfullra skoðana, kynferðisleg áreitni, ofbeldi og einelti.
  • Heilbrigðar stafrænar venjur sem geta bætt heilsu og vellíðan.

Hér er að finna ýmist efni um skjáinn:

Heilsuvera – Skjárinn og börnin

Heilsuvera – Skjáviðmið fyrir 6 til 12 ára

Heilsuvera – Skjáviðmið fyrir 13 til 18 ára

Netvís https://netvis.is/

Netvís – Verkfærakista fyrir foreldra

Samtal um samfélagsmiðla