Textasamkeppnin Fernuflug hóf sig til flugs nú í byrjun skólaárs þar sem grunnskólanemendum í 8.-10. bekk var boðið að taka þátt og senda inn texta undir yfirskriftinni ‚Hvað er að vera ég?‘. Um 1.200 textar bárust í keppnina sem er frábær þátttaka.

Það gleður okkur að þrír nemendur úr Lækjarskóla eiga texta sem valdir hafa verið til birtingar á mjólkurfernum MS, en alls munu 48 textar birtast á fernunum.

Hver texti verður myndskreyttur á einfaldan hátt og munu nöfn textasmiða, aldur og skóli fylgja með svo ekki fari á milli mála hver höfundur hvers texta er. Þá munu allir textar ásamt myndskreytingum og nöfnum höfunda birtast á vefsíðunni ms.is/fernuflug.

Hér fyrir neðan má sjá texta nemenda í Lækjarskóla og óskum við þeim innilega til hamingju með fallegan og vel skrifaðan texta. Til hamingju nemendur og kennarar sem komu að verkefninu. Áfram Lækjarskóli.

Hvað er að vera ég?

Höfundur: Alexandra Tinna Nilsen Ómarsdóttir 13 ára

Að vera ég er eins og að ganga á milli skugga og ljóss.

Í hjarta mínu dansa spurningar sem fá engin svör,

en í augunum glóa vonir sem neita að slokkna.

Ég finn fyrir styrk í smáum sigri,

brosi sem hitar, orði sem gefur vængi.

Samt er alltaf blær af óvissu,

eins og vindur sem hvíslar að mér um leiðir fram undan.

Að vera ég er að vera á ferð –

ekki alveg komin, en heldur aldrei föst,

bara eilíflega á leiðinni heim til sjálfrar mín.

 

Hvað er að vera ég?

Höfundur: Gerður Lind Pálmadóttir 14 ára

Mér finnst ég alltaf þurfa að vera fullkomin,
því það er það sem aðrir búast við.
Ég segi sjálfum mér að það sé í lagi að gera mistök,
en ég skammast mín samt fyrir þau.

Ég reyni að hlusta á hjartað mitt,
jafnvel þegar heimurinn segir mér að vera einhver annar.
Það er auðvelt að týnast í væntingum annarra
og missa sjálfan sig í leiðinni.

Ég reyni að elska mig eins og ég er.

 

Hvað er að vera ég?

Höfundur: Jóhanna Margrét Logadóttir 13 ára

Líf mitt minnir mig á íslenskt sumar. Það getur verið verulega fagurt, birtan og óendanleg hlýjan kemur skyndilega og allt virðist mögulegt. Ég geng um í fallega veðrinu og hugsa um að ég gæti ekki beðið um neitt meira. En stundum breytist allt svo skyndilega, skýin safnast saman, kuldinn læðist að og rigningin hellist niður. Allt sem var gott virðist nú fjarlægt. En ég vissi að þetta myndi líða hjá. Það er eðlilegt að veðrið breytist, líkt og lífið. Ég þarf bara að klæða mig eftir veðri og trúa því að sólin komi aftur.

Til hamingju með frábæran árangur.