Ungmennaþing Hafnarfjarðar var haldið nýlega þar sem nemendur úr 8.–10. bekk komu saman og ræddu málefni sem skipta ungmenni máli. Þau unnu í hópum og settu fram hugmyndir um hvernig hægt sé að bæta þjónustu og aðstæður fyrir ungmenni í bænum. Tillögurnar verða kynntar fyrir bæjarstjórn.

Nokkrir nemendur í Lækjarskóla tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla 2026 á miðvikudaginn í síðustu viku, þar sem rætt var um ofbeldi í nánum samböndunum. Þeir stóðu sig virkilega vel.