Við í A-113 fengum skemmtilega heimsókn í gær. Kisu fannst kynfræðsla mjög skemmtileg og var heila kennslustund í knúsi og klappi. Hún mætti svo galvösk í næsta tíma sem var náttúrufræði sem var ekki alveg jafn skemmtileg þar sem við ræddum aðeins erfðafræði og að einungis læður væru þrílitar vegna þess að þrílita genið er víkjandi á X litning. Kisa lét sig því hverfa og hefur ekki sést síðan.