Frábærri ferð í Vindáshlíð er lokið hjá nemendum í 9. bekk. Æðisleg vika þar sem nemendur styrktu vinasambönd og samvinnu. Það sem stóð upp úr var traustaganga, dálítið draugaleg draugasaga og sirkusleikir!

Síðasta kvöldið var pizzapartý, hóparnir sömdu innkomuatriði fyrir lokakvöldið og tóku þátt í hinum ýmsu þrautum og leikjum.

Ferðin var bæði skemmtileg og uppbyggjandi og nemendur eru strax farnir að huga að útskriftarferðinni sinni á næsta ári!